Í kvöld lauk sautjándu umferð í Iceland Express deild karla þar sem nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn lögðu nýkrýnda bikarmeistara Keflavíkur 75-65 í Icelandic Glacial Höllinni. Þá voru fjórir leikir í 1. deild karla á dagskrá í kvöld.
Iceland Express deild karla
Þór Þorlákshöfn 75-65 Keflavík
Matthew Hairston landaði myndarlegri tvennu hjá Þór með 15 stig og 20 fráköst en stigahæstur var Darrin Govens með 22 stig og Blago Janev bætti við 21 stigi og 10 fráköstum. Hjá Keflavík var Jarryd Cole með 24 stig og Charlie Parker gerði 15 og tók 10 fráköst.
Valur 61-74 Tindastóll
Valsmenn telfdu fram nýjum leikmanni sem heitir Marvin Andrew Jackson og gerði hann 18 stig og tók 14 fráköst hjá Val. Næstur honum var Birgir Björn Pétursson með 14 stig og 7 fráköst. Hjá sigurliði Tindastóls var Friðrik Hreinsson með 19 stig og Curtis Allen gerði 15 stig.
KR 106-84 Fjölnir
1. deild karla
Þór Akureyri 79-68 Skallagrímur
Ármann 65-106 Hamar
ÍG 91-120 Höttur
ÍA 95-83 FSu
1. deild kvenna
KFÍ 69-53 Stjarnan
Nánar síðar….



