13:45
{mosimage}
Aganefnd KKÍ tók fyrir kæru á hendur Helga Viggóssyni, leikmanni Tindastóls, og dæmdi hann í eins leiks bann. Helgi fékk eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í leik gegn FSu í 2. umferð Iceland Express-deildar karla á sunnudagskvöld.
Bannið tekur gildi á hádegi á fimmtudag og því verður Helgi í banni gegn Grindavík þegar Stólarnir mæta í Röstina á föstudagskvöld kl. 19:15.






