HomeBónus deildinBónus deild karlaÚrskurðað í máli DeAndre Kane

Úrskurðað í máli DeAndre Kane

Aga- og úrskurðarnefnd hefur sektað Deandre Kane, leikmann Grindavíkur, um 80.000 krónur vegna háttsemi hans að loknum leik liðsins gegn Tindastóli sem fram fór þann 12. maí síðastliðinn. Niðurstaðan byggir á reglugerð um aga- og úrskurðarmál, en atvikið átti sér stað í spennuþrungnu andrúmslofti eftir að flautað hafði verið til leiksloka í Skagafirði.

Auk sektarinnar tók nefndin fyrir tvær aðrar ábendingar sem bárust vegna framkomu Deandre Kane og forystumanns Tindastóls eftir sama leik. Báðum þessum ábendingum var hins vegar vísað frá þar sem kærunum var ekki komið á framfæri eftir réttum kæruleiðum og í öðru tilvikinu þóttu framlögð gögn jafnframt vera ófullnægjandi til frekari meðferðar.

Fréttir
- Auglýsing -