HomeBónus deildinBónus deild kvennaÚr Vesturbænum til Hollands

Úr Vesturbænum til Hollands

Hanna Þráinsdóttir hefur gengið til liðs við hollenska efstu deildar liðið ZZ Leiden fyrir komandi tímabil.

Hanna, sem er íslensk landsliðskona, flyst af landi brott til þess að búa og leika í Leiden. Forráðamenn félagsins fagna komu hennar og binda miklar vonir við að hún muni styrkja hópinn, sérstaklega hvað varðar varnarleik, hæð og leikskilning á vellinum.

Í yfirlýsingu kemur fram að hún hafi valið ZZ Leiden þar sem félagið búi yfir öllu sem þarf til þess að ná árangri, þar á meðal frábæru þjálfarateymi, leikmönnum og stuðningsliði. Hún segir umhverfið einkennast af vinnusemi og elju, og hún sé spennt að verða hluti af liðinu og taka þátt í að byggja upp eitthvað stórt á komandi leiktíð.

Fréttir
- Auglýsing -