Nýliðar ÍA í Bónus deild karla tilkynntu fyrr í kvöld að Josip Barnjak hefði yfirgefið lið þeirra.
Rétt í þessu staðfesti félagið svo að í hans stað mun Ivan Gavrilovic fyrrum leikmaður Tindastóls koma. Ivan er 29 ára 205 cm framherji sem skilað hefur 17 stigum og 6 fráköstum að meðaltali í 16 leikjum í Bónus deildinni.
Tilkynning:
ÍA og Tindastóll hafa komist að samkomulagi um að Ivan Gavrilovic spili með Skagamönnum út leiktíðina.
Ivan hefur leikið með Tindastól það sem af er leiktíðar og er næst stigahæsti leikmaður liðsins.
Ivan er 29 ára og 205cm á hæð og mun styrkja liðið í baráttunni sem framundan er.
Við bjóðum Ivan velkominn á Skagann.




