HomeBónus deildinBónus deild karlaÚr Skagafirðinum á Álftanes

Úr Skagafirðinum á Álftanes

Álftanes hefur samið við bandaríska leikstjórnandann Dedrick Deon Basile fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla.

Hann er íslenskum körfuboltaáhugamönnum rækilega kunnur en hann hóf ferilinn hér á landi með Þór Akureyri árið 2020 og var síðast í lykilhlutverki hjá Tindastóli á leið þeirra í lokaúrslit. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness, fagnar komu Basile og segir ljóst að gæði hans og styrkleikar muni passa fullkomlega inn í leikmannahópinn.

Basile hefur stimplað sig inn sem einn öflugasti leikmaður deildarinnar til margra ára og skilaði hann ríflega 20 stigum, 7 stoðsendingum og 6 fráköstum að meðaltali í leik á nýafstöðnu tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -