Ármann hefur gengið frá samningi við bandaríska bakvörðinn Kinyon Hodges um að leika með liðinu í Bónusdeildinni á komandi leiktíð.
Hodges, sem er 25 ára og 186 cm á hæð, þekkir íslenska körfuboltann mætavel enda lék hann með ÍA og Haukum í 1. deildinni síðustu tvö tímabil. Á síðustu leiktíð var hann í stóru hlutverki hjá Haukum þar sem hann skilaði að meðaltali 20 stigum, 6,0 fráköstum og 5 stoðsendingum í 27 leikjum.
Áður en Hodges kom til Íslands lék hann í bandaríska háskólaboltanum, meðal annars með Eastern Illinois þar sem hann var stigahæsti leikmaður liðsins tímabilið 2022–2023 og var valinn í nýliðalið Ohio Valley-deildarinnar.
Komu Hodges er ætlað að styrkja leikmannahóp Ármanns til muna fyrir átökin í Bónusdeildinni, en mikill metnaður er hjá félaginu fyrir komandi tímabili og lýsir leikmaðurinn sjálfur yfir mikilli spennu fyrir því að mæta til leiks í Ármannstreyjunni.



