HomeNeðri deildir1. deild karlaÚr Haukum til Njarðvíkur

Úr Haukum til Njarðvíkur

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, lýsir yfir mikilli ánægju með nýjasta leikmann liðsins en hinn 24 ára gamli framherji Hugi Hallgrímsson gekk til liðs við græna í dag. Rúnar bendir á að Hugi sé fjölhæfur leikmaður og góður karakter sem muni færa íslenska kjarna liðsins aukna stærð eftir frábært tímabil í fyrstu deildinni. Þjálfarinn telur nýja leikmanninn algjörlega tilbúinn í að taka næsta skref og láta til sín taka í Bónus deildinni á komandi keppnistímabili.

Hugi kemur til Njarðvíkur frá Haukum þar sem hann skilaði að meðaltali rúmum 15 stigum, 6,8 fráköstum og 2,7 stoðsendingum í leik á síðustu leiktíð. Hann hóf meistaraflokksferil sinn vestur á Ísafirði með Vestra en hefur síðan þá einnig spilað með Stjörnunni. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem framherjinn spilar með liði af Suðurnesjum, því hann á að baki einn leik með Þrótti úr Vogum frá tímabilinu 2023-2024.

Fréttir
- Auglýsing -