Hinn efnilegi Kormákur Nói Jack hefur samið við þýska félagið Bremerhaven þar sem hann mun leika með U19 ára liði félagsins á komandi tímabili.
Bremerhaven er fornfrægt félag sem leikur í Pro A, næstefstu deild Þýskalands, en Hilmar Smári Henningsson lék einmitt með félaginu á tímabilinu 2023–2024. Kormákur lék lykilhlutverk með U16 ára landsliði Íslands í sumar sem náði frábærum árangri og vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu, og fagna Stjörnumenn því að sjá sinn mann taka skrefið út í atvinnumennsku.




