HomeBónus deildinBónus deild karlaÚr Forsetahöllinni í Síkið

Úr Forsetahöllinni í Síkið

Tindastóll hefur samið við bandaríska leikmanninn Ade Murkey um að leika með liðinu á komandi leiktíð, en hann kemur inn í hópinn í stað Jalen Adaway sem mun ekki leika með félaginu í vetur.

Murkey er 196 sentímetra hár bakvörður og vængmaður, fæddur árið 1998 í Minneapolis, og lék háskólabolta með Denver Pioneers. Hann kemur með mikla reynslu úr NBA G-deildinni þar sem hann hefur spilað með Iowa Wolves, Stockton Kings og Wisconsin Herd, auk þess að eiga að baki leik í NBA-deildinni með Sacramento Kings. Hann verður þar með annar leikmaðurinn í sögu Tindastóls með NBA-reynslu á ferilskránni, á eftir Pétri Guðmundssyni sem gekk til liðs við Stólana árið 1990.

Murkey þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa leikið með Álftanasi í efstu deild og segir Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, hann styrkja liðið verulega bæði sem skorari, frákastari og með aukinni hæð í vængstöðunum. Sjálfur segist Murkey spenntur fyrir tækifærinu á Sauðárkróki og hlakkar til að hjálpa Stólunum að halda áfram á sigurbraut.

Fréttir
- Auglýsing -