Þór hefur samið við Theu Ólafíu Lucic Jónsdóttur um að leika með kvennaliði félagsins á komandi leiktíð.
Thea kemur til Þórs frá ÍR og gengur inn í spennandi uppbyggingu hjá félaginu í Þorlákshöfn. Davíð Arnar, þjálfari Þórs, segir mikla ánægju ríkja með komu hennar en hún falli afar vel að þeirri vegferð sem fram undan er, komi inn með mikinn kraft og metnað og geti orðið mikilvægur hlekkur í liðinu. Þórsarar bjóða Theu hjartanlega velkomna í græna búninginn.




