Jason Helgi Ragnarsson hefur skrifað undir samning við Snæfell og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Jason er uppalinn hjá félaginu og spilaði í gegnum alla yngri flokka þess, auk þess sem hann lék með meistaraflokki Snæfells í 2. deild á sínum tíma. Eftir að hafa leikið með Fylki í 1. deild karla snýr hann nú aftur heim í Hólminn.
Jasoni er lýst sem öflugum og fjölhæfum sóknarmanni með gott skot og góðan leikskilning. Hann er flinkur að skapa færi fyrir sjálfan sig og samherja sína, auk þess sem hæð hans og lengd munu nýtast liðinu vel í frákastabaráttunni og í varnarleiknum.




