Erik Nói Gunnarsson hefur skrifað undir samning við Snæfell og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Erik Nói er 22 ára gamall leikmaður sem er uppalinn hjá Haukum en kemur til Snæfells frá Fylki.
Hann er fjölhæfur leikmaður með góðan leikskilning sem getur samkvæmt tilkynningu lagt sitt af mörkum á báðum endum vallarins. Hjá Snæfelli er mikil ánægja með að fá Erik Nóa í hópinn, en hann kemur með mikla orku, baráttuvilja og vinnusemi sem á eftir að nýtast liðinu vel á komandi leiktíð.



