spot_img
HomeFréttirUppgjör IEX karla eftir 13 umferðir

Uppgjör IEX karla eftir 13 umferðir

 
Þrettán umferðum er nú lokið í Iceland Express deild karla og er svo búið að tvö lið deila með sér efsta sætinu. Grindavík og Snæfell tróna á toppi deildarinnar bæði með 22 stig og ekki langt undan eru KR og Keflavík með 18 stig. Í fallsætunum eru KFÍ og Njarðvík sem hefur mátt muna sinn fífil fegurri. Nú eru átta umferðir eftir af venjulegri deildarkeppni og því 16 stig í pottinum fyrir hvert lið. 
Úrslit þrettándu umferðarinnar:
 
Njarðvík 89-97 ÍR
Fjölnir 92-97 Stjarnan
Tindastóll 95-88 Haukar
KFÍ 64-74 Grindavík
Keflavík 112-89 Snæfell
KR 97-87 Hamar
 
Staðan í deildinni:
 
 
Eins og sést glögglega á stöðutöflunni eru fjögur lið á toppnum sem hóta því nú að stinga önnur lið deildarinnar af. Við höfum þó séð úrslit þetta tímabilið í öllum regnbogans litum og jaðrar það nánast við óðs manns æði að reyna að spá fyrir um úrslit leikjanna í deildinni.
 
Oft hefur nánast verið hægt að ganga að úrslitum ýmissa leikja með nokkurri vissu og það héldu eflaust margir að KR myndi rúlla yfir Hamar í gærkvöldi og að Grindavík myndi kjöldraga KFÍ eða að Njarðvík myndi landa sigri á heimavelli gegn ÍR og svona mætti lengi telja. Deildin er hreinlega óútreiknanleg og ekki síður núna þegar mörg lið hafa gengið í gegnum talsverðar breytingar og eru jafnvel sum hver enn að gera breytingar á sínum hóp.
 
Næsta umferð hefst núna strax á fimmtudag og síðasta umferð deildarinnar fer svo fram þann 10. mars næstkomandi svo það er þéttur pakki framundan og bikarinn kemur inn í þetta líka.
 
Eftir þrettán umferðir líta helstu tölfræðileiðtogar svona út:
 
Stigaskor:
Lazar Trifunovic – Keflavík 25,0
Semaj Inge – Haukar 22,7
Gerald Robinson – Haukar 22,0
 
Fráköst:
Gerald Robinson – Haukar 14,38
Pavel Ermolinskij – KR 12,54
Kelly Biedler – ÍR 11,92
 
Stoðsendingar:
Ægir Þór Steinarsson – Fjölnir 9,46
Pavel Ermolinskij – KR 9,00
Hörður Axel Vilhjálmsson – Keflavík 8,00
 
Framlag:
Pavel Ermolinskij – KR 29,62
Hayward Fain – Tindastóll 28,25
Kelly Biedler – ÍR 26,77
 
Stolnir boltar:
Hayward Fain – Tindastóll 3,38
Craig Schoen – KFÍ 3,23
Semaj Inge – Haukar 3,00
 
Varin skot:
Christopher Smith – Njarðvík 3,20
Ragnar Á. Natahanaelsson – Hamar 2,54
Kelly Biedler – ÍR 1,77
 
Næsta umferð deildarinnar:
 
Fimmtudagur 20. janúar
Stjarnan-Keflavík
ÍR-KFÍ
Grindavík-Tindastóll
Haukar-KR
 
Föstudagur 21. janúar
Hamar-Fjölnir
Snæfell-Njarðvík

Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski
Frá viðureign Fjölnis og Stjörnunnar á sunnudag.

[email protected]
Fréttir
- Auglýsing -