Fimmtán umferðum er nú lokið í Iceland Express deild karla og er svo búið að tvö lið deila með sér toppsætinu en það eru Grindavík og meistarar Snæfells, bæði lið með 24 stig. Ekki langt undan eru KR og Keflavík bæði með 22 stig svo baráttan á toppnum er orðin ansi fróðleg. Til þess að gera deildina enn meira spennandi, meira óútreiknanlega þá tókst nýliðum KFÍ á botninum að leggja topplið Snæfells í síðustu umferð. Deildin galopin í báða enda og ljóst að aukin harka mun færast í boltann nú með hverri umferðinni.
Staðan í deildinni:
Tölfræðileiðtogarnir eftir 15 umferðir:
Flest stig að meðaltali í leik:
Semaj Inge – Haukar – 22,47
Christopher Smith – Njarðvík – 21,67
Kelly Biedler – ÍR – 20,93
Flestar stoðsendingar að meðaltali í leik:
Ægir Þór Steinarsson – Fjölnir – 9,00
Pavel Ermolinskij – KR – 8,73
Hörður Axel Vilhjálmsson – Keflavík – 7,73
Flest fráköst að meðaltali í leik:
Gerald Robinson – Haukar – 14,60
Kelly Biedler – ÍR – 11,93
Pavel Ermolinskij – KR – 11,87
Hæsta meðalframlag í leik:
Pavel Ermolinskij – KR – 28,80
Hayward Fain – Tindastóll – 27,10
Kelly Biedler – ÍR – 26,73
Flestir stolnir boltar að meðaltali í leik:
Hayward Fain – Tindastóll – 3,60
Semaj Inge – Haukar – 3,27
Craig Schoen – KFÍ – 3,07
Flest varin skot að meðaltali í leik:
Christopher Smith – Njarðvík – 3,08
Ragnar Natahanaelsson – Hamar – 2,53
Hayward Fain – Tindastóll – 1,90
Flestar tvennur á tímabilinu (10 stig og 10 stolnir/fráköst/varin skot eða stoðsendingar):
Gerald Robinson – Haukar – 11
Pavel Ermolinskij – KR – 11
Kelly Biedler – ÍR – 10
Ryan Amoroso – Snæfell – 9
Jón Ólafur Jónsson – Snæfell – 7
Ægir Þór Steinarsson – Fjölnir – 7
Ryan Pettinella – Grindavík – 7
Næsta umferð 3. febrúar 2011 – heil umferð, allir leikir 19:15:
KR-Keflavík
Hamar-Njarðvík
Stjarnan-KFÍ
Snæfell-Tindastóll
ÍR-Grindavík
Haukar-Fjölnir
Mynd/ [email protected] – Semaj Inge er að eiga hörku tímabil




