HomeFréttirUnnu til bronsverðlauna í Svíþjóð - Arnheiður í úrvalsliði Norðurlanda

Unnu til bronsverðlauna í Svíþjóð – Arnheiður í úrvalsliði Norðurlanda

18 ára og yngri landslið kvenna í körfubolta lauk keppni á Norðurlandamótinu í Södertälje í dag með því að tryggja sér þriðja sætið á mótinu.

Íslenska liðið lék lokaleik sinn gegn Svíþjóð í Täljehallen og lauk þeirri viðureign með sigri heimakvenna, 118-89. Svíar mættu gríðarlega öflugir til leiks og skoruðu heil 41 stig strax í fyrsta leikhluta gegn 17 stigum Íslands, sem gerði verkefnið erfitt það sem eftir lifði leiks.

Íslensku stelpurnar sýndu þó flotta takta í öðrum leikhluta þar sem liðin skoruðu jafnmörg stig, eða 32 stig hvoru megin. Seinni hálfleikurinn var jafnari en forskot Svía úr upphafsfjórðungnum reyndist of mikið til að brúa. Finnland stóð uppi sem sigurvegari mótsins en Svíþjóð hafnaði í öðru sæti.

Þrátt fyrir tapið í dag má liðið vera stolt af árangri sínum og bronsverðlaununum á mótinu. Arnheiður Ólafsdóttir átti stórleik fyrir Ísland í dag og dró vagninn í sóknarleiknum. Hún skoraði 22 stig og tók 9 fráköst á þeim tæpu 30 mínútum sem hún spilaði, en hún endaði með hæsta framlag vallarins, 32. Í kjölfarið á frábærri spilamennsku sinni í gegnum allt mótið var Arnheiður valin í úrvalslið Norðurlandamótsins, sem er frábær viðurkenning fyrir hana og íslenskan körfubolta.

Aðrar sem létu að sér kveða í leiknum gegn Svíum voru Arna Rún Eyþórsdóttir sem skoraði 15 stig og Inga Lea Ingadóttir sem skilaði glæsilegri tvennu með 14 stig og 13 fráköst. Íslenska liðið sýndi mikinn baráttuanda og fær dýrmæta reynslu í sarpinn fyrir komandi verkefni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -