spot_img
HomeFréttirUnglingalandsmótið hófst í dag

Unglingalandsmótið hófst í dag

Unglingalandsmót UMFÍ hófst á Selfossi í dag og venju samkvæmt er keppt í körfubolta. Keppt er í Vallaskóla og Iðu og er dagskráin þétt en hana má nálgast hérna.
Fyrstu leikirnir hófust í morgun og verður keppt í körfu fram á kvöld, einnig laugardag og sunnudag. Vitaskuld eru fjölmargar aðrar íþróttir í boði en boltaþyrstir geta litið við í Vallaskóla og Iðu til að fylgjast með keppni í körfuknattleik.
 
Búist er við því að keppendur verði eitthvað á þriðja þúsundið svo fjörið vantar ekki á Selfoss þessa verslunarmannahelgina.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -