HomeFréttirUndir 18 ára lið karla hefur leik á NM á morgun

Undir 18 ára lið karla hefur leik á NM á morgun

U18 ára landslið karla í körfuknattleik hélt í morgun til Svíþjóðar þar sem strákarnir munu taka þátt í Norðurlandamótinu (NM) næstu daga. Körfuknattleikssambandið hvetur dygga stuðningsmenn til að fylgjast með gengi liðsins, en hægt verður að nálgast upplýsingar og horfa á beinar útsendingar frá leikjunum í gegnum streymisveituna Baskettv.se.

Strákarnir eiga þétta og spennandi dagskrá fram undan þar sem þeir mæta fimm þjóðum á sex dögum. Íslenska liðið hefur leik á morgun, þriðjudaginn 23. júní, gegn Eistlandi og mætir svo Dönum daginn eftir. Á fimmtudaginn er komið að leik gegn Noregi en eftir hvíldardag á föstudag lýkur mótinu með leikjum gegn Finnlandi á laugardag og gestgjöfunum Svíum á sunnudag.

Hérna er hópur U18 karla

Hérna verður hægt að horfa á leikina í beinu vefstreymi

Fréttir
- Auglýsing -