Undir 18 ára drengjalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Pitesti í Rúmeníu.
Íslenska liðið hafnaði í fjórða sæti síns riðils á mótinu með einn sigur og þrjú töp. Í fyrradag töpuðu þeir svo fyrir Portúgal í fyrsta leik umspils síns um sæti 9 til 16 og í gær í umspili um sæti 13 til 16 gegn Sviss. Í dag kl. 10:00 að íslenskum tíma munu þeir mæta Bretlandi í úrslitaleik um 15. sæti mótsins.
Hér verður leikurinn í beinu vefstreymi



