Íslensku U15 landsliðin í körfuknattleik hefja leik í dag á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Kisakallio í Finnlandi dagana 3.–6. ágúst. Ísland tekur þátt með bæði stúlku- og drengjalið en auk Íslands leika Finnland, Danmörk og Lettland á mótinu. Leikið er í riðlakeppni þar sem öll lið mætast innbyrðis.
Sýnt verður frá öllum leikjum mótsins í beinni útsendingu á KorisTV (basket.fi) þar sem einnig er hægt að fylgjast með tölfræði í rauntíma.
Dagskrá íslensku liðanna á mótinu á íslenskum tíma er eftirfarandi:
Stúlkur U15
Mánudagur 3. ágúst: Lettland – Ísland kl. 09:00
Miðvikudagur 5. ágúst: Ísland – Finnland kl. 13:30
Fimmtudagur 6. ágúst: Ísland – Danmörk kl. 07:30
Drengir U15
Mánudagur 3. ágúst: Lettland – Ísland kl. 11:15
Þriðjudagur 4. ágúst: Ísland – Finnland kl. 15:45
Fimmtudagur 6. ágúst: Ísland – Danmörk kl. 09:45



