Undir 15 ára landslið Íslands héldu af landi brott til Finnlands um helgina til þess að taka þátt í opnu Norðurlandamóti.
Stúlknalið Íslands hefur unnið báða leiki sína á mótinu til þessa, en drengirnir hafa unnið einn, gegn Finnlandi og tapað einum, gegn Þýskalandi. Í dag munu liðin mæta liðum Danmerkur.
Ásamt Íslandi á mótinu eru Þýskaland, Danmörk og Finnland.
Leikir mótsins verða í beinu vefstreymi hérna.
Hérna verður hægt að fylgjast með úrslitum og tölfræði úr leikjum mótsins.
Hérna má sjá undir 15 ára lið Íslands



