Í dag fara fram undanúrslitin í karlakörfuboltanum á Ólympíuleikunum í London. Kl. 16:00 mætast Spánverjar og Rússar og verður leikur þeirra í beinni útsendingu á Ólympíurásinni hjá RÚV. Sigurlið leiksins mætir Bandaríkjamönnum eða Argentínu í úrslitaleik mótsins.
Viðureign Bandaríkjanna og Argentínu hefst kl. 20:00 að íslenskum tíma og verður sýnt frá þeim leik á RÚV og hefst útsendingin skv. dagskrá á RÚV.is kl. 20.20.
Mynd/ Kobe Bryant verður í eldlínunni með Team USA í kvöld en hann getur ekkert lært af liðsfélögum sínum eins og Fúsijama TV greindi frá um daginn.






