HomeFréttirUmfjöllun: KR fraus þegar í Hólminn var komið

Umfjöllun: KR fraus þegar í Hólminn var komið

 
KR mættu vígreifir í Hólminn með Emil Þór fyrverandi leikmann Snæfells innanborðs en án Edward Horton sem á við meiðsli að stríða frá síðasta leik. Bæði lið höfðu sigra í sínum leikjum í fyrstu umferð og ljóst að þetta væri leikur annarar umferðar. Þar fór svo að Snæfell hafði undirtökin allann leikinn og leiddi með 20 stigum í hálfleik og það var meðalmunurinn út leikinn sem Snæfell vann 116-100 og Brandon Cotton með 38 stig. Hægt er að segja að svona áttu menn ekki von á KR í Hólminum.
Byrjunarlið leiksins voru:
 
Snæfell: Quincy Hankins Cole, Brandon Cotton, Pálmi Freyr, Jón Ólafur, Sveinn Arnar.
KR: David Tairu, Finnur Atli, Hreggviður Magnússon, Emil Þór, Björn Kristjánsson.
 
Snæfell byrjaði af krafti og sýndu aðeins betri vörn en áður og virtust ætla að smella henni saman á réttu augnabliki. KR réði lítið við hraðann leik Snæfells sem keyrðu allt upp, spiluð mjög góðar sóknir og voru komnir í 20-9 þegar Hrafn tók leikhlé og ræddi aðeins stöðuna. David Tairu kom sterkur inn og setti svo tvo þrista beint í mark og virtist kætast yfir KR mönnum sem reyndu að laga stöðuna fyrir lokaflautið í fyrsta hluta og staðan 29-22 fyrir rauða Snæfellsmenn.
 
Mikið var tekið af fallbyssuskotum báðum megin í upphafi annars leikhluta sem rötuðu ekki sína leið nema hjá Ólafi Ægis hjá KR og svo Agli Egils hjá Snæfelli. KR voru að klaufast í sóknum sínum og varnalega voru þeir fjarverandi og náðu ekki að hlaupa Snæfell uppi þennan tíu stiga mun. Snæfell áttu svo sem engar draumasóknir en héldu forystunni og máttu einnig fara að mæta til varnarvinnu svona annað slagið. Skarphéðinn Ingason uppskar óíþróttamannslega villu fyrir hrindingar og ekki skánaði andinn yfir KR þegar tæknivilla var dæmd á bekk KR fljótlega á eftir fyrir eitthvað sem fór ekki mikið fyrir. Snæfell tók þá leikhlé og féll mikið með þeim á næstu augnablikum leiksins og fóru úr 45-32 í 52-34 og KR reyndi pressu en Snæfell keyrði bara upp hraðaupphlaupin og kláruðu sig á því. Staðan fór svo í 20 stig, 63-43 fyrir Snæfell í hálfleik.
 
Stigahæstir í Snæfelli voru Brandon með 20, Quincy 10 og 8 fráköst og Sveinn Arnar 9 stig. Hjá KR voru David Tairu með 16 og Hreggviður 11 sem lét aðeins til sín taka í öðrum hluta.
 
Snæfell komst í 71-48 og virtust hafa allt vald á vellinum og maður var eiginlega hissa á slakri mótspyrnu KR og átti von á allt öðru frá eins sterku liði, sem leggjast trúlega yfir leik sinn eftir að hafa fengið á sig 80 stig í miðjum þriðja hluta þó David Tairu væri að hamast. Liðin misstu bæði einbeitinguna í varnaleiknum í seinni hálfleik, líkt og á köflum í þeim fyrri, og voru að fá auðveldar körfur undir lok þriðja hluta og staðan 91-71 fyrir Snæfell.
 
Quincy Cole átti rosalega „alley-oop“ troðslu á fyrstu sekúndum fjórða hluta svo fór um fólk og konur féllu í yfirlið. KR sigu, aðeins hressari, nær um miðjann fjórða hluta og var farið að draga af Snæfellingum í stöðunni 99-85. Leikurinn var þó í höndum þeirra rauðu sem gáfu engin grið og kláruðu leikinn 116-100. Kristófer Acox hjá KR átti síðasta orðið í leiknum með massatroðslu.
 
Brandon Cotton sýndi einn stórsóknarleikinn enn og var með 38 stig og bætti meira að segja við sig 3 stoðsendingum frá síðasta leik. Quincy Cole átti flottan leik með 25 stig, 17 fráköst og 5 stoðsendingar ásamt því að troða með tilþrifum. Sveinn Arnar var þar eftir með 13 stig og 4 fráköst og Nonni Mæju 12 stig og 7 fráköst. Ólafur Torfason 9/7 fráköst. Pálmi Freyr 8/ 8 stoðsendingar og stjórnaði leiknum mjög vel. Hafþór Ingi 6/4 stoðs. Egill Egils 5 stig. Guðni, Snjólfur, Þorbergur og Daníel 0.
 
Hjá KR var David Tairu í sérflokki með 33 stig og 11 fráköst og sinnti öllum hliðum leiksins vel. Hreggviður Magnússon var með 21 stig og 7 fráköst. Finnur Atli 14/7 frák. Emil Þór var fagnað í Hólminum og skilaði 7 stigum og 3 fráköstum. Skarphéðinn Ingason 6/5 frák. Jón Orri 6. Kristófer Acox 5. Björn Kristjánsson og Ólafur Ægisson 3 stig hvor. Páll Fannar 2. Egill Vignisson og Martin Hermannsson 0.
 
Eftir leikinn sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR, inntur eftir því einhverju heildrænu í leik þeirra: „Við komum hérna og gátum ekki rassgat, vorum áhugalausir og varnaleikurinn var víðsfjarri hjá annars reyndum leikmönnum. Það var varnaleikurinn sem fór með okkur í fyrri hálfleik og oriði erfitt eftir það.“
 
Ingi Þór var virkilega ánægður með sigurinn og sína menn í sóknarleiknum heilt yfir þar sem þeir voru að skila 116 stigum, en um varnaleikinn sagði hann: „Þetta er allt að koma en við verðum að spila mikið betri varnarleik á heimavelli.“
 
Punktar úr leiknum.
• Snæfell tapaði boltanum 11 sinnum í leiknum en 20 sinnum í síðasta leik
• Brandon Cotton er kominn með 71 stig úr tveimur leikjum
• David Tairu setti niður 10 af 15 tveggja stiga skotum sínum
• Quincy Cole átti teiginn í kvöld og gerði fá mistök og endaði með 41 í framlagstigum
• Nonni Mæju þarf að fá sér nýja skó eftir að hægri sólinn fauk undan uppáhalds Kobe skónum hans sem hann keypti á e-bay.
• Emil Þór var hress þrátt fyrir tap sinna mann og tók í fjölmargar hendur í Hólminum á leið sinni út í rútu, enda drengur góður.
 
 
Umfjöllun: Símon B. Hjaltalín.
Fréttir
- Auglýsing -