spot_img
HomeFréttirUmfjöllun: KFÍ sterkari á Jakanum

Umfjöllun: KFÍ sterkari á Jakanum

 Á föstudagskvöld (28.10.11) tók KFÍ á móti galvöskum Skagamönnum sem hafa verið á rífandi siglingu í haust undir stjórn leikandi þjálfara, Terrence Watson. Bæði lið höfðu sigrað tvær fyrri viðureignir sínar í haust og alveg deginum ljósara að hvorugt liðanna ætlaði að láta af þeirri hefð.  
 Byrjunarlið ÍA skipuðu þeir: Dagur Þórisson, Ómar Ö. Helgason, Sigurður R. Sigurðsson, Terrence Watson og Örn Arnarson.  Hjá KFÍ hófu leik þeir: Jón Hrafn Baldvinsson, Ari Gylfason, Craig Schoen, Kristján Andrésson og Christopher Miller-Williams.

Í upphafi leiks virtust liðin frekar taugatrekt og var nokkuð mislagðar hendur, svo komust leikmenn betur í takt við leikinn eins og gerist og gengur. KFÍ leiddi fyrstu mínuturnar og líklega kom það engum á óvart. Leikmenn ÍA voru þó ekki mættir í Jakann til þess að taka sér eitthvað „Washington Generals“ hlutverk og bitu hressilega frá sér. Það fór því vafalaust um eitthvað af stuðningsfólki KFÍ í stúkunni þegar staðan var skyndilega orðin 7:11 eftir rúmlega 5 minútna leik.  Tvennt var þá komið á daginn, í fyrsta lagi að Terrence Watson er potturinn og pannan í öllum leik ÍA og reyndar kom það ekki á óvart. Í öðru lagi að leikmenn ÍA eru beittar 3ja stiga skyttur, sem alls ekki má skilja eftir í opnu skoti!  Leikurinn var jafn og skiptust liðin á körfum út leikhlutann.  Staðan eftir fyrsta fjórðung var 24:23 fyrir KFÍ.  Í öðrum leikhluta seig KFÍ smám saman fram úr og skemmst frá því að segja að hálfleikstölur voru 50:39 fyrir heimamenn.

Eftir te-seremóníu Péturs í hálfleik komu KFÍ menn einbeittir til leiks og héldu svipuðum ákafa í leik sínum. Reyndar kynnu einhverjir að segja ákafann full mikinn, því þeir héldu áfram að brjóta á ÍA. Vel að merkja með villum, sem flestar virtust hvorki vel valdar né tímasettar.  Þetta leiddi til þess að KFÍ sendi leikmenn ÍA 11 sinnum á vítalínuna í þessum eina fjórðungi og höfðu Skagamenn 10 stig upp úr krafsinu.  Eitthvað var samt að ganga upp hjá KFÍ því þeir unnu leikhlutann 22:16 og því augljóst að ÍA náði aðeins að setja þrjú skot niður.  KFÍ var með 14 stiga forskot, 69:55 fyrir síðasta leikhluta og fátt virtist geta komið í veg fyrir heimasigur. Í fjórða leikhluta sást greinilega að mótlætið hafði dregið verulega mátt úr gestunum. Gengu Ísfirðingar á lagið og tryggðu öruggan heimasigur 95:68, sem fyrst og fremst var byggður á traustum varnarleik.

ÍA er allt annað en sýnd veiði og alls ekki gefin. Þeir hafa byrjað haustið vel og miðað við leik þeirra í kvöld má gera ráð fyrir ágætis vertíð hjá þeim. Spái því að þeir haldi áfram að „ræna“ stigum og geta hæglega sett stórt strik í reikninginn hjá þeim liðum sem fyrirfram hafa verið talinn hvað sigurstranglegust. Sú spá gengur samt trauðla eftir, nema fleiri leikmenn þeirra stigi fram, og ábyrgð í sóknarleik og fráköstum verði betur dreift. Terrence myndi líklega njóta sín enn betur í sókninni með traustan leikstjórnanda sér við hlið. Verður spennandi að fylgjast með þeim í næstu leikjum.

Pétur Sigurðsson þjálfari er með ungt og efnilegt lið í höndunum.  Ari verður enn og aftur að teljast maður leiksins ásamt Chris að þessu sinni. Erfitt er samt að gera upp á milli þeirra tveggja og Sir Craig Schoen sem sýndi sparihliðarnar með þrefaldri tvennu.  Þokkaleg dreifing á stigaskori og framlag yngri leikmanna KFÍ gladdi áhorfendur í Jakanum.

 Heildarskor:

ÍA: Terrence Watson 24/14 fráköst, Ás kell Jónsson 15, Hallgrímu P. Stefánsson 9/5 fráköst, Birkir Guðjónsson 6, Hörður K. Nikulásson 5, Dagur Þórisson 5, Sigurður R. Sigurðsson 4.

KFÍ: Chris Miller-Williams 27/16 fráköst, Ari Gylfason 24/9 fráköst,  Craig Schoen 19/10 fráköst og 13 stoðsendingar, Jón Hrafn Baldvinsson 10/4 fráköst, Hermann Ó. Hermannsson 6, Sigurður Hafþórsson 5/6 stoðsendingar, Hlynur Hreinsson 2, Gautur Arnar Guðjónsson 2.

 Dómarar: Steinar Orri Sigurðsson og Hákon Hjartarson

 

 Mynd og umfjöllun/ Helgi Kr. Sigmundsson

Fréttir
- Auglýsing -