Eyðimerkurgöngu Hauka er lokið í Iceland Express-deildinni, en fyrsti sigur þeirra kom í kvöld, er þeir tóku á móti Fjölni. Lokatölur 78-73 í bráðfjörugum leik. Er þetta annar sigur Hauka á Fjölni á keppnistímabilinu en Haukar unnu þá í 1. umferð Lengjubikarsins á dögunum. Ægir Þór Steinarsson lék ekki með Fjölni í kvöld vegna meiðsla.
Fjölnismenn voru sterkir í upphafi leiks og nýttu sér það að sóknarleikur Hauka var ekki nógu markviss. Fjölnismenn náðu fljótlega 10 stiga forystu þar sem öflug liðsvörn var lykillinn. Í öðrum leikhluta náðu Haukar að vinna sig inní leikinn á ný með 11-0 spretti og að lokum leiddu þeir með einu stigi í hálfleik, 38-37, en þeir máttu þakka Helga Einarssyni það en hann skoraði flautukörfu í lok fyrri hálfleiksins.
Hjá Haukum var Jovonni Shuler frábær í fyrri hálfleik þó að lítið hafi farið fyrir stigaskorun hjá honum. En hann spilaði öfluga vörn ásamt því að vera með 11 fráköst. Christopher Smith var kominn með 14 stig. Hjá Fjölni var sóknarþrenning þeirra, Calvin O´Neal, Nathan Walkup og Árni Ragnarsson allt í öllu í sóknaraðgerðum Fjölnismanna.
Varnarleikurinn var aðalmerki leiksins í kvöld og í þriðja leikhluta var stál í stál allan tímann. Að loknum leikhlutanum var enginn breyting á stigamun liðanna. Haukar leiddu áram með einu stigi en nú var staðan 56-55. Haukur Óskarsson og Helgi Einarsson fengu báðir sínar fimmtu villu í þriðja leikhluta og voru útilokaðir frá leiknum.
Haukar komast yfir fljótlega í lokaleikhlutanum þegar þeir skora sjö stig gegn engu frá Fjölni. Bæði lið eru að klúðra vítaskotum og í jafn jöfnum og mikilvægum leik og þessi var getur það reynst dýrmætt á lokasprettinum. Fjölnir jafnaði leikinn þegar skammt var til leiksloka en Haukar reyndust sterkari á lokasprettinum undir forystu Emils Barja og klára svo leikinn á vítalínunni þegar Fjölnismenn reyndu hvað sem þeir gátu til að jafna.
Lokatölur 78-73 og mikilvægur sigur í hús hjá rauðum frá Hafnarfirði.
Haukar unnu frákastabaráttuna og var hún ein af lykilþáttum leiksins en þeir tóku 12 sóknarfráköst í fyrri hálfleik og 20 í heildina. Breidd Haukaliðsins var þeim mikilvæg í kvöld en þeir fengu framlag frá mörgum leikmönnum. Fjölnir var samt óheppinn að landa ekki sigri en þeir sýndu flotta takta án Ægis Þórs Steinarssonar, en hann er þeim gríðarlega mikilvægur.
Stigaskor:
Haukar: Christopher Smith 24/5 fráköst/7 varin skot, Emil Barja 14/5 fráköst, Jovanni Shuler 12/18 fráköst, Sævar Ingi Haraldsson 10/4 fráköst/5 stoðsendingar, Davíð Páll Hermannsson 6, Örn Sigurðarson 5/8 fráköst, Helgi Björn Einarsson 4, Óskar Ingi Magnússon 3, Guðmundur Kári Sævarsson 0, Haukur Óskarsson 0, Steinar Aronsson 0, Ágúst Hilmar Dearborn 0.
Fjölnir: Nathan Walkup 22/5 fráköst, Calvin O’Neal 20/7 fráköst, Árni Ragnarsson 15/5 fráköst, Jón Sverrisson 6/11 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5, Hjalti Vilhjálmsson 3, Trausti Eiríksson 2/7 fráköst, Tómas Daði Bessason 0, Haukur Sverrisson 0, Gústav Davíðsson 0, Daði Berg Grétarsson 0, Arnþór Freyr Guðmundsson 0
Mynd/ Karl West




