HomeFréttirUmfjöllun: Baráttusigur KFÍ á Jakanum í gær

Umfjöllun: Baráttusigur KFÍ á Jakanum í gær

 
 
Fyrstu gestir KFÍ þetta tímabil voru Hamarsmenn. Hvergerðingar og dómarar fá sérstakt hrós fyrir að láta hvorki veður né vind stöðva sig, enda komu þeir akandi. Reyndar mun færð hafa verið sæmileg landleiðina þótt flug hafi legið niðri um nokkurt skeið. Það var samt ekki mikil gestrisni sem Hamarsliðið var trakterað með á leikvellinum. Barátta beggja liða var í algleymingi allan leikinn og taugatitringur áberandi strax í upphafi, enda sigur í þessum upphafs leik ákaflega dýrmætur.
Í liði Hamars byrjuðu þeir Terrence Worthy sem er amerískur leikstjórnandi, hinn gríðarlega hávaxni miðherji Hvergerðinga Ragnar Nathanaelsson (215 sm), Bjarni Lárusson, Stefán Halldórsson og að lokum nýr enskur leikmaður að nafni Louie Arron Kirkman. Byrjunarlið KFÍ skipuðu þeir Jón Hrafn Baldvinsson, Ari Gylfason, Craig Schoen, Kristján Andrésson og Christopher Miller-Williams. Jón, Kristján og Christopher voru að leika sinn fyrsta leik fyrir KFÍ.
 
Jón Hrafn opnaði stigareikninginn með firnasterkum leik sem skilaði 5 stigum eftir 1:14 mínútur. Leikmenn Hamars ætluðu greinilega ekki að láta leggja sig að velli án baráttu og komu vel til baka. Talsvert var um tapaða bolta, skref og ýmis önnur mistök hjá báðum liðum á þessum upphafsmínutum. Liðin skiptust á að skora og eftir fyrsta leikhluta var staðan jöfn 15:15. Í öðrum leikhluta voru Hamarsmenn sterkari aðilinn og eftir rúmlega tvær mínutur höfðu þeir náð fimm stiga forskoti (17:22) og virtust vera með undirtökin í leiknum. Sú staða reyndist hverful og leikurinn þróaðist mjög svipað og fyrsti leikhluti hafði gert. Leikurinn jafnaðist fljótt og liðin skiptust á í stigaskorinu. Gestirnir fóru í hálfleikshlé með tveggja stiga forskot (30:32).
 
Þriðji leikhluti hófst með látum og sama barátta einkenndi leik liðanna sem fyrr. KFÍ komu sterkir til leiks eftir ræðu Péturs og jöfnuðu leikinn, og náðu svo forskoti eftir rúmlega tvær mínutur með góðri 3ja stiga körfu frá Kristjáni Pétri Andréssyni. Leikurinn var jafn næstu mínutur en á síðustu þremur mínútunum snéri KFÍ leiknum sér í vil og náðu fimm stiga forskoti (54:49). Einkenni þessa leiks var barátta og því kom ekki á óvart að Hvergerðingar mættu sterkir strax í upphafi fjórða leikhluta, enda söxuðu þeir jafnt og þétt á forskot heimaliðsins og staðan orðin 56:55 eftir tvær og hálfa mínutu! Var óneitanlega farið að fara um suma í stúkunni þegar þarna var komið við sögu. Pétur og leikmenn hans sögðu þá, hingað og ekki lengra! Skipt var í yfirgír og leikurinn snérist á einu augabragði (eins og einhver mun hafa sagt við allt annað tilefni) heimamönnum í vil. Um miðjan leikhlutann var staðan 68:57 KFÍ í vil. Á þessum kafla hafði Hamar skipt yfir í svæðisvörn sem þeir hafa gert að einu þekktasta vörumerki Suðurlands (á eftir Sláturfélaginu og kannski Kjörís), en jafnvel hún brást þegar 3ja stiga skyttur KFÍ fengu að njóta sín. Eftir þetta varð ekki aftur litið þrátt fyrir hetjulega baráttu Hamranna, sem sendu KFÍ menn ört á vítalínuna síðustu mínúturnar. Að lokum reyndist 79:68 sigur KFÍ öruggur.
 
Þessi lið eiga talsvert inni og má búast við Hamri mjög beittum í næsta leik. Það kæmi engum á óvart sem fylgdist með í gær þótt þessi tvö lið muni marga hildina há þetta keppnistímabil. Það var ánægjulegt að sjá Pétur þjálfara treysta ungu leikmönnunum og áttu þeir Sævar Vignisson og Hlynur Hreinsson fína innkomu í kvöld.
 
 
Heildarskor:
 
 
HAMAR: Louie Kirkman 24/8 fráköst, Terrence Worthy 17/5 fráköst/5 stoðsendingar, Stefán Halldórsson 7, Halldór Jónsson 6/2 fráköst, Bjarni Lárusson 5/13 fráköst og þar af 7 sóknarfráköst, Ragnar Nathanaelsson 4/6 fráköst, Svavar Pálsson 3/5 fráköst, Emil Þorvaldsson 2.
 
KFÍ: Craig Schoen 17/6 stoðsendingar, Ari Gylfason 15/5 fráköst, Chris Miller-Williams 14/16 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 13, Kristján Pétur Andrésson 12, Hlynur Hreinsson 4/3stoðsendingar, Sigurður Hafþórsson 2/3 stolnir, Sævar Vignisson 2/4 fráköst og 3 stoðsendingar.
 
Dómarar: Georg Andrésson, Jón Þór Eyþórsson
 
 
Mynd og umfjöllun/ Helgi Kr. Sigmundsson
Fréttir
- Auglýsing -