Undir 20 ára karlalið Íslands leikur þessa dagana í A deild Evrópumótsins í Heraklíon á Krít.
Eftir að hafa dottið út í 16 liða úrslitum mótsins í gær leikur liðið nú upp á sæti sitt í deildinni, sæti 9 til 16 á mótinu. Leikur dagsins er gegn Rúmeníu kl. 10:00 að íslenskum tíma, en takist Íslandi að vinna hann halda þeir sæti sínu í A deildinni.
Hér má fylgjast með leiknum í beinu vefstreymi.



