Undir 20 ára lið kvenna leikur sinn annan leik í A deild EuroBasket í dag kl. 10:00 að íslenskum tíma gegn Póllandi.
Nokkuð óvænt náði íslenska liðið að vinna sterkt lið Serbíu í fyrsta leik sínum í gær og því má búast við hörkuleik gegn annarri sterkri þjóð frá Póllandi í dag.
Leikurinn er annar af þremur í riðil Íslands, en eftir hann eiga þær aðeins eftir að leika gegn Ítalíu komandi þriðjudag 7. júlí.
Hér fyrir neðan verður hægt að horfa á leikinn í beinni útsendingu.




