U18 ára landslið kvenna hélt í morgun til Svíþjóðar til að taka þátt í Norðurlandamótinu í körfuknattleik.
Íslenska liðið hefur leik fimmtudaginn 25. júní gegn Eistlandi klukkan 17:45. Næstu dagar verða annasamir hjá liðinu en á föstudaginn 26. júní mæta þær Dönum klukkan 15:15. Eftir hvíldardag leika þær gegn Noregi sunnudaginn 28. júní klukkan 18:15. Mótið klárast svo með tveimur leikjum, gegn Finnlandi mánudaginn 29. júní klukkan 12:30 og loks gegn Svíþjóð þriðjudaginn 30. júní klukkan 12:30.
Hægt er að fylgjast með öllum leikjum í beinu streymi.
Hérna verður hægt að horfa á leikina í beinu vefstreymi




