U18-landslið kvenna í körfuknattleik leikur sinn síðasta leik á B-deild Evrópumótsins í Tulcea í Rúmeníu í dag, sunnudaginn 9. ágúst.
Íslensku stelpurnar leika um 5. sæti mótsins og mæta sterku liði Grikklands. Flautað verður til leiks klukkan 13:00 að íslenskum tíma (15:00 að staðartíma).
Íslenska liðið mætir fullt af sjálfstrausti til leiks eftir frábæran 102–77 sigur gegn Bretlandi í gær. Stelpurnar ætla sér að ljúka mótinu af krafti, tryggja sér 5. sætið og kveðja Evrópumótið með glæsilegum sigri.
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá leik Íslands og Grikklands hér.




