U18 ára lið karla spilaði sinn síðasta leik í riðlakeppninni á Norðurlandamótinu núna rétt í þessu en leikurinn hófst kl. 11.00 að íslenskum tíma. Strákarnir okkar höfðu unnið Norðmenn í gær og freistuðu þess að fylgja því eftir og vinna Finna. Það tókst ekki og því munu Finnland og Ísland mætast aftur á morgun í leik um bronsið.
Leikurinn byrjaði vel og var hraður, íslenska liðið sótti hratt upp völlinn og Finnarnir sömuleiðis þó ekki væri mikið skorað. Staðan eftir fjórar mínútur var 4:3 fyrir Ísland.
Finnar hörðu skorað úr þriggjastiga skoti og bætu öðrum þrist við þegar Haukur Helgi svaraði fyrir Ísland og Kristófer í næstu sókn á eftir. Staðan 8:6 fyrir Ísland og Finnar tóku leikhlé.
Ísland hélt áfram að spila fína vörn og keyra hratt upp völlinn. Kristófer skoraði í hraðaupphlaupi eftir góða sendingu langt fram völlinn og Haukur Helgi bætti við körfu og fékk villu að auki í næstu sókn og smellti niður vítinu, staðan 13:8 fyrir Ísland og allt á blússandi siglingu hjá okkar strákum. Finnar setja næstu 5 stig og jafna 13:13 áður en Íslands skorar næstu 6 stig og fer í 19:13. Finnar skora síðustu 2 stig leikhlutans, staðan 19:15 fyrir Ísland.
Eftir fyrsta leikhluta var Haukur Helgi komin með 11 stig, Kristófer 6 og Andri 2 fyrir Ísland.
Í öðrum leikhluta halda Finnar áfram að skjóta fyrir utan línuna og hitta vel og sækja á körfu Íslands, ná 3-8 áhlaupi og komast yfir 22:23. Þegar leikhlutinn er hálfnaður hafa Finnar náð 6 stiga forskoti, 26:32.
Þegar hérna var komið við sögu tognaði einn af þremur dómurum leiksins og því var smá hlé á leiknum á meðan sá sem hljóp í skarðið var að gera sig tilbúinn. Þetta virtist hleypa auknum krafti í okkar menn sem náðu frábærum kafla, og breyttu stöðunni í 39:35 fyrir Ísland þegar ein og hálf mínúta var eftir af fyrri hálfleik en Ísland skoraði körfur af öllum regnbogans litum. Finnar héldu sér inni í leiknum með þristum og staðan í hálfleik jöfn, 41:41, þrátt fyrir að Ísland hafi verið betri aðilin í leikhlutanum.
Haukur var kominn með 18 stig, Kristófer 14, Elvar 3 og Andri Fannar og Snorri og Styrmir með 2 stig hver.
Í þriðja leikhluta náðu Finnar undirtökunum og náðu forskoti þökk sé góðri nýtingu þeirra fyrir utan þriggja, voru 11 af 26 eftir þennan leikhluta. Staðan var 59:71 eftir þrjá leikhluta og Finnarnir unnu því þessa lotu 18:30 sem átti eftir að verða erfitt að minnka í lokaleikhlutanum.
Ísland tók sig til og saxaði á forskot Finnana og munurinn varð minnst 4 stig í lok 4. leikhluta. Styrmir Gauti átti góða innkomu en hann skoraði öll stigin sín 10 í lokaleikhlutanum. Nær náðu okkar menn því miður ekki og leikurinn endaði í 5 stiga tapi 80:85.
Osku Heinonen var erfiður við að eiga i liði Finnanan í dag og var með 31 stig. Hjá Íslandi var Haukur Helgi með 28 stig og 5 fráköst og Kristófer Acox með 22 stig og 11 fráköst. Styrmir Gauti Fjelsted endaði með 10 og Snorri Hrafnkellsson 8 stig.
U18 strákarnir unnu því einn leik á mótinu gegn Norðmönnum sem þýðir að þeir munu leika um 3. sætið á morgu, sunnudag, gegn Finnum.
Byrjunarliðið Íslands: Björn, Oddur, Kristófer, Haukur og Illugi.
Ljósmynd/Kristinn G. Pálsson – Haukur Helgi sækir að finnsku körfunni.



