Íslenska U18 ára landsliðið leikur gegn Norðmönnum í dag á EM í B-deild í Bosníu. Ísland vann frækinn sigur á Svartfjallalandi í gær og situr á toppi riðilsins ásamt Svíþjóð.
Verkefni dagsins er vafalítið að koma liðinu niður á jörðina eftir sigurinn í gær því þótt Norðmenn hafi tapað báðum leikjum sínum stórt til þessa á mótinu eru þeir vel færir um að baka okkur vandræði. Leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma eða kl. 20:00 að staðartíma. Beina tölfræðilýsingu frá leiknum má nálgast á heimasíðu KKÍ þegar líður að leik.
Mynd/ Valur Orri Valsson í leik gegn Norðmönnum á NM fyrr á þessu ári.






