Evrópukeppnin í B-deild hjá U18 ára landsliðunum heldur áfram í Bosníu í dag þar sem Ísland mætir Hollandi kl. 18:00 að íslenskum tíma.
Ísland missti naumlega af því að spila um réttinn til að komast í A-deild og leikur því um 9.-16. sæti á mótinu. Hollendingar eru andstæðingar okkar í dag og liðið mætir svo Portúgölum á morgun.





