Evrópukeppnin í B-deild U18 ára landsliða hefst í Bosníu þann 9. ágúst næstkomandi þar sem Ísland leikur í C-riðli. Með Íslandi í riðli eru Noregur, Finnland, Svartfjallaland, Svíþjóð og svo Sviss.
Ísland og Sviss eigast við í sínum fyrsta leik í C-riðli þann 9. ágúst en Sviss og Svartfjallaland eru minna þekktar stærðir fyrir Ísland heldur en önnur lið í riðlinum en Ísland hefur margsinnis leikið gegn Norðmönnum, Finnum og Svíum á NM sem jafnan fer fram í Solnahallen í Svíþjóð hvert ár.
Hér er leikjadagskrá U18 ára liðsins í Bosníu:
9. ágúst Ísland-Sviss
10. ágúst Ísland-Svartfjallaland
11. ágúst Ísland-Noregur
12. ágúst Ísland-Svíþjóð
13. ágúst Ísland-Finnland
Mynd/ Mikið mun mæða á Martin Hermannssyni í Bosníu.