Íslenska U16 ára landslið karla í körfuknattleik stígur sína fyrstu skref á Evrópumótinu í B-deild í kvöld þegar strákarnir mæta liði Úkraínu í Gevgelija í Makedóníu.
Leikurinn er sá fyrsti hjá íslenska liðinu í B-riðli mótsins og hefst flautað verður til leiks klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
Dino Stipcic, yfirþjálfari liðsins, ásamt aðstoðarþjálfurunum Sigurði Friðriki Gunnarssyni og Ögmundi Árna Sveinssyni, tefla fram öflugu 12 leikmanna liði á mótinu sem er reiðubúið í slaginn gegn sterku liði Úkraínu.
Hægt er að fylgjast með öllum tilþrifunum og horfa á leikinn í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan:




