U16 ára landslið karla í körfuknattleik er mætt til Makedóníu þar sem liðið tekur þátt í B-deild Evrópumótsins (EuroBasket). Mótleikirnir fara fram í borgunum Gevgelija og Skopje, en íslenska liðið leikur í riðlakeppninni í Gevgelija.
Íslenska liðið leikur í B-riðli mótsins og hefja strákarnir leik fimmtudaginn 6. águst. Dagskrá leikja hjá íslenska liðinu í riðlakeppninni er eftirfarandi (á íslenskum tíma):
6. ágúst kl. 19:00: Ísland – Úkraína
7. ágúst kl. 16:30: Ísland – Makedónía
8. ágúst kl. 09:00: Ísland – Swiss
10. ágúst kl. 11:30: Ísland – Kýpur
11. ágúst kl. 14:00: Ísland – Króatía
Að lokinni riðlakeppni hefst átta liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum um sæti 9 til 22 fimmtudaginn 13. ágúst, en mótinu lýkur laugardaginn 15. ágúst.
Hópurinn og þjálfarateymið
Dino Stipcic er yfirþjálfari U16 landsliðsins og honum til aðstoðar eru þeir Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson.
Tólf leikmenn skipa leikmannahóp Íslands á mótinu. Stjarnan á flesta fulltrúa í hópnum eða fimm talsins, þeir Baltasar Torfi Hlynsson, Jón Breki Sigurðarson, Kormákur Nói Jack, Marínó Ómarsson og Úlfur Týr Ágústsson. Þrír leikmenn koma frá Keflavík, þeir Arnar Freyr Elvarsson, Davíð Breki Antonsson og Sigurður Karl Guðnason. Þá eiga Árni Atlason frá Breiðabliki, Atli Freyr Haraldsson Katrínarson frá Val, Hlynur Ingi Finnsson frá Sindra og Sindri Logason frá Haukum einnig sæti í hópnum.




