HomeFréttirU16 drengja mæta gestgjöfunum í dag eftir frábæran sigur gegn Úkraínu

U16 drengja mæta gestgjöfunum í dag eftir frábæran sigur gegn Úkraínu

Íslenska U16 ára landslið drengja í mætir gestgjöfum Makedóníu í öðrum leik sínum í B-riðli Evrópumótsins. Leikurinn hefst klukkan 16:30 að íslenskum tíma.

Íslensku strákarnir hófu mótið af miklum krafti í gær með sterkum 88-77 sigri gegn öflugu liði Úkraínu. Úkraínumenn voru geysilega sterkur andstæðingur, en íslenska liðið sýndi mikla yfirvegun og leiddi leikinn allt frá fyrstu mínútu. Sigurinn gefur liðinu mikilvægt nesti og sýnir að íslensku strákarnir mæta vel undirbúnir og af fullum þunga inn í mótið.

Næsta áskorun er ekki af léttari gerðinni en Makedónía leikur á heimavelli og bar sigur úr býtum í sínum fyrsta leik. Búast má við hörkuleik og mikilli stemningu í íþróttahúsinu í Gevgelija.

Hægt verður að fylgjast með öllum tilþrifunum og horfa á leikinn í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan:

Fréttir
- Auglýsing -