HomeÚti í heimiEvrópaU15 lið Ármanns í undanúrslit á Scania Cup

U15 lið Ármanns í undanúrslit á Scania Cup

Drengjalið Ármanns í skipað leikmönnum fæddum árið 2011 hefur tryggt sér sæti í undanúrslitum á hinu virta Scania Cup í Svíþjóð. Liðið tryggði sig áfram með öruggum sigri á finnska liðinu Beat Basket fyrr í dag.

Ármenningar hafa verið áberandi á mótinu til þessa og eiga þrjá leikmenn á meðal þeira stigahæstu:

  • Erik Bjarki Juto: Er næststigahæstur á mótinu með 26,8 stig að meðaltali í leik.
  • Bergur Jarl Ólafsson: Situr í 13. sæti yfir stigahæstu leikmenn með 16,8 stig að meðaltali.
  • Stefan Nedeljkovic: Er í 17. sæti með 14,3 stig að meðaltali.

Strákarnir mæta sænska liðinu Viby Basket í undanúrslitum klukkan 08:30 í fyrramálið. Síðar á morgun kemur í ljós hvort liðið muni leika um gull- eða bronsverðlaun á mótinu.

Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].

Fréttir
- Auglýsing -