HomeFréttirU15 landsliðin í Kisakallio: Strákarnir mæta Finnum í dag en stelpurnar í...

U15 landsliðin í Kisakallio: Strákarnir mæta Finnum í dag en stelpurnar í hvíld

Annar leikdagur opna Norðurlandamótsins undir 15 ára stendur nú yfir í Kisakallio í Finnlandi.

Á fyrsta degi mótsins í gær fór stúlknalið Íslands vel af stað með 58–52 sigri gegn Lettlandi. Drengjaliðið mátti hins vegar þola tap í sínum opnunarleik gegn sterku liði Letta, 87–63.

Í dag, þriðjudaginn 4. ágúst, eiga stelpurnar frí en strákarnir mæta heimaliði Finnlands klukkan 15:45 að íslenskum tíma.

Hægt er að fylgjast með öllum leikjum í beinni útsendingu og skoða rauntímatölfræði á KorisTV (basket.fi).

Fréttir
- Auglýsing -