Opna Norðurlandamótið undir 15 ára heldur áfram í Kisakallio í Finnlandi í dag, miðvikudaginn 5. ágúst.
Eftir góðan 58–52 sigur gegn Lettum í opnunarleik sínum mætir íslenska stúlknaliðið heimaliði Finnlands klukkan 13:30 að íslenskum tíma (16:30 að staðartíma). Finnar töpuðu sínum fyrsta leik gegn Dönum og má búast við hörkuleik.
Drengjalið Íslands á hins vegar frí í dag eftir tvo nauma tapleiki gegn Lettlandi og Finnlandi, en lokaleikur strákanna á mótinu er gegn Danmörku á morgun, fimmtudag.
Sýnt verður frá leik stúlknanna í beinni útsendingu á KorisTV (basket.fi) þar sem einnig er hægt að fylgjast með tölfræði í rauntíma.




