HomeFréttirU15 drengja: Ísland í þriðja sæti og tryggði sér bronsverðlaun með sigri...

U15 drengja: Ísland í þriðja sæti og tryggði sér bronsverðlaun með sigri á Danmörku

Íslenska U15 landslið drengja lauk leik á opna Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag með sannfærandi 65–52 sigri gegn Danmörku. Með sigrinum hafnaði íslenska liðið í þriðja sæti mótsins og tryggði sér bronsverðlaun.

Íslensku strákarnir náðu tökunum strax í fyrsta leikhluta (16–13) og gerðu út um leikinn með frábærum öðrum og þriðja leikhluta þar sem þeir unnu leikhlutana 22–9 og 17–9. Ísland var með forystuna í tæpar 35 mínútur af leiknum og náði mest 28 stiga forskoti áður en Danir löguðu stöðuna aðeins í lokafjórðungnum.

Albert Þorleifsson átti frábæran leik og var stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig. Óttar Davíðsson skoraði 15 stig og Guðmundur Noel Jónsson bætti við 13 stigum. Þá skoraði Sölvi Arnarsson 8 stig, Axel Arnarsson og Guðjón Brjánsson voru með 4 stig hvor, Hrafn Viðarsson skoraði 2 stig, og þeir Hjörtur Davíðsson ásamt fyrirliðanum Benedikt Þórólfssyni skoruðu 1 stig hvor.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -