HomeFréttirTyrkir refsa grimmilega í Laugardalshöll

Tyrkir refsa grimmilega í Laugardalshöll

Íslenska karlalandsliðið er 23 stigum undir, 37–60, gegn geysisterku liði Tyrkja eftir fyrri hálfleik í Laugardalshöllinni.

Tyrkir mættu af miklum krafti og hittu frábærlega í fyrri hálfleik. Framherjinn Cedi Osman hefur verið óstöðvandi og skoraði 15 stig á tæpum 7 mínútum. Þá kom Onuralp Bitim sterkur inn af bekknum með 13 stig og leikstjórnandinn Malachi Flynn bætti við 11 stigum fyrir gestina.

Íslenska liðið hefur átt í erfiðleikum með að finna taktinn í sókninni gegn þéttri vörn Tyrkja. Jón Axel Guðmundsson og Styrmir Snær Þrastarson eru stigahæstir í íslenska liðinu í hálfleik með 7 stig hvor, en Kári Jónsson og Kristinn Pálsson eru báðir með 6 stig.

Strákarnir okkar þurfa að eiga magnaðan seinni hálfleik og herða verulega varnarleikinn ætli þeir sér að brúa þetta 23 stiga bil.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -