Tvígrip: Ívar Webster, Reykjanesmótið og Svali Björgvins ræðir frábært Valslið 1991-92

Símareikningur sem sló öll met, Reykjanesmót með breyttu fyrirkomulagi og Webster aftur til liðs í úrvalsdeildinni. Svarti puttinn var dýr fyrir Þórsara, Rúv vildi ekki mæta út af auglýsingu og allt í uppnámi fyrir norðan þannig að Gylfi settist við ritvélina.


Svali Björgvins verður á línunni og ræðir frábæran árangur Valsmanna á tímabilinu 1991-1992 ásamt drama kastinu. Allt þetta og meira til í þætti þrjú af Tvígrip – karfan kortlögð í samstarfi við 1966 ehf., Bílasölu Reykjaness, Humarsöluna og Margt smátt.

Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil og Kristal.