23:58
{mosimage}
(Sveinbjörn Claessen gerði sigurstig ÍR í spennuleik á Sauðárkróki)
Í kvöld mættust Tindastóll og ÍR í Síkinu á Króknum, liðin í 8. og 9. sæti sem gaf fyrirheit um spennandi leik og stóð hann fyllilega undir þeim efnum. Hjá Stólunum var Helgi Freyr Margeirsson mættur í hópinn eftir mörg ár að heiman, en hann hefur spilað undanfarið í Danmörk og þar áður með Þór Akureyri. Axel Kárason var hinsvegar farinn aftur í nám eftir jólafrí. Byrjunarlið þeirra hvítklæddu var Óli, Flake, Rikki, Svavar og Ísak. Hjá bláklæddum ÍR-ingum voru það Ómar, Hreggviður, Sveinbjörn, Davíð og Eiríkur sem hófu leik.
ÍR byrjaði leikinn af krafti og eftir fimm mínútur var staðan orðin 7-17 og heimamenn byrjuðu enn einn leikinn rólega. Þeir komu sér þó fljótlega inn í leikinn á næstu mínútum, Helgi Freyr setti langan þrist og Ísak og Flake mjötluðu inn stigum. Í lok fyrsta fjórðungs munaði nú samt 8 stigum, 20 – 28. Eiríkur byrjaði sterkt fyrir ÍR og var kominn með 13 stig, þar af þrjá þrista. Hinu megin var Ísak með 8 stig.
Helgi Rafn skoraði fyrstu þrjú stig annars leikhluta fyrir Stólana, en Sveinbjörn svaraði með jafn mörgum. Þá komu tveir þristar í röð frá Helga Frey og Svavari og tvo víti að auki og munurinn fór niður í 2 stig, 32 – 34. Þá kom 14-2 sprettur frá ÍR sem lauk með þristi frá Sveinbirni sem hrökk í gang á þessum kafla. Liðin skiptust svo á körfum fram að hléi og staðan í hálfleik var 40 – 52. Sveinbjörn Claessen skoraði 12 stig í leikhlutanum, en hjá Stólunum setti Helgi Freyr niður átta.
Tindastólsdrengir komu hressari til leiks í síðari hálfleik og þeir frændur Friðrik og Svavar smelltu niður tveimur þristum. Munurinn minnkaði jafnt og þétt og eftir fjórar mínútur var hann orðinn tvo stig, 55 – 57. ÍR svaraði með 7 stigum í röð og virtust ætla að byggja aftur upp forskot. Þá skelltu Stólarnir í lás í vörninni og síðan fylgdu 11 stig í röð hjá þeim og þeir komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum, 66- 64. Þá hófst smá skotsýning þegar fjórir þristar fuku niður, tveir hvoru megin. Enn voru Stólarnir yfir, en fjögur stig ÍR í lok þriðja leikhluta fleyttu þeim aftur í forystu 72 – 74. Nú var greinilegt að stefndi í spennandi lokafjórðung og menn orðnir vel stemndir.
Í fjórða leikhluta skipust liðin á að hafa forystu. Stólarnir komu sér yfir í stöðunni 83 – 80 og aftur 87 – 84 og þrjár mínútur eftir. Ómar skoraði tvö stig fyrir ÍR, en Ísak svaraði með þristi hinu megin. Eiríkur minnkaði síðan muninn í tvö stig 92 – 90, en ævintýralegur þristur frá Svavari, spjaldið ofan í, setti muninn í fimm stig og innan við mínúta eftir og Stólarnir farnir að eygja sigur. Hreggviður svaraði þá með þristi eftir að ÍR náði tveimur sóknarfráköstum og síðan skoraði hann tvist eftir misheppnaða sókn heimamanna. Staðan orðin jöfn 95 – 95 og Kiddi tók
leikhlé fyrir heimamenn þegar 15 sekúndur voru eftir. Stólarnir fóru í sókn og Ísak skoraði tveggja stiga körfu. Eiríkur fór síðan upp með boltann fyrir ÍR og þegar 0,7 sekúndur voru eftir fékk hann dæmda villu á Óla Barðdal í skottilraun og fékk því tvö víti til að jafna leikinn. Hann var ískaldur á línunni þrátt fyrir gríðarlegan hávaða í húsinu og setti bæði niður. Staðan jöfn og Kiddi tók leikhlé og reyndi að setja eitthvað upp fyrir þessar 0,7 sekúndur, en það gekk ekki því ÍR-ingar komust inn í innkastið og tíminn rann út. Framlenging því staðreynd. Svavar var sterkur fyrir heimamenn í síðasta leikhlutanum, setti niður tíu stig og Rikki skoraði 7. Hreggviður var öflugur í lokin og kom ÍR inn í leikinn í endann sem dugði eftir að Eiríkur hitti úr sínum vítum.
Heimamenn byrjuðu framlenginguna á þremur stigum frá Flake, en síðan komu sex stig í röð frá ÍR, áður en Flake jafnaði leikinn í 103 – 103, með þriggja stiga körfu. Innan við mínúta eftir. ÍR fór í sókn og Ómar setti niður sniðskot. Stólarnir sóttu næst og Eiríkur braut á Ísaki Einarssyni sem fékk tvö víti þegar 20 sekúndur voru eftir. Þetta var fimmta villa Eiríks sem fór því útaf með 26 stig í vasanum. Ísak hitti úr báðum vítunum, enn var tími fyrir ÍR að skora, en góð vörn heimamanna gerði það að verkum að þeir náðu bara slæmu þriggja stiga skoti og framlenging númer 2 næst á dagskrá. Staðan 105 – 105 og allt að ganga af göflunum í Síkinu.
Enn á ný fóru Stólarnir betur af stað og þegar framlenging tvö var hálfnuð var staðan 112 –
108. ÍR tapaði boltanum í næstu sókn og útlitið gott fyrir Tindastól. Stólarnir misstu hinsvegar boltann og Hreggviður skoraði tvö stig. Þegar hér var komið við sögu var Steinar Arason ÍR búinn að fylgja félaga sínum með fimm villur. Rikki kom heimamönnum aftur í fjögurra stiga forskot og nú var ein og hálf mínúta eftir. Sveinbjörn dripplaði í gegn með Ísak yfir sér, náði ótrúlegu sniðskoti sem lak niður og fékk villu á Ísak. Ísak varð þar með að fara af velli með fimm villur og Sveinbjörn hitti síðan úr vítinu og munurinn aðeins eitt stig, 116 – 115. Stólarnir
náðu ekki að skora úr næstu sókn, en ekki tókst gestunum það heldur og Stólarnir náðu boltanum og Sveinbjörn braut á Óla Barðdal. Bæði lið voru náttúrulega kominn með skotrétt þegar þarna var komið við sögu og fór Óli því á vítalínuna þegar ellefu sekúndur voru eftir. Hann hitti aðeins úr fyrra vítinu og uppúr frákastinu fékk ÍR innkast. Kiddi tók leikhlé til að skipuleggja vörnina. ÍR fékk innkast við miðju og Sveinbjörn fékk boltann og í stað þess að reyna að keyra á vörnina og skora tvö eða fá víti lét hann vaða fyrir utan þriggja stiga línuna og það steinlá. ÍR komið yfir
117 – 118 og sex sekúndur eftir. Helgi Freyr fékk boltann, dripplaði upp allan völl og reyndi sniðskot, en það misheppnaðist um leið og tíminn rann út og ÍR-ingar dönsuðu villtan sigurdans eftir ótrúlegar lokasekúndur. Frábærum leik lokið og áhorfendur á Króknum sem studdu frábærlega við bakið á sínum mönnum í kvöld þurfa að fara gríðarlega svekktir í háttinn í kvöld. Það er hálf ósanngjarnt að annað liðið þurfi að tapa svona frábærum leik, en það var hlutskipti heimamanna í kvöld, en þeir verða að gleyma þessum leik fljótt því annar mikilvægur leikur er á fimmtudaginn á heimavelli gegn Njarðvík.
Stigahæstur Tindastóls í kvöld var Ísak með 29 stig, en næstir komu Flake með 22 og síðan jafnir þeir Friðrik og Svavar með 21. Helgi Freyr var með 15 stig og kom með ferskan blæ inn í liðið, spilaði góða vörn og stýrði liðinu vel. Helgi Rafn var sterkur í teignum og tók 9 fráköst. Liðið var að spila nokkuð vel í kvöld, sérstaklega í síðari hálfleik og eru greinileg batamerki á því eftir nokkra dapra leiki að undanförnu.
Hjá ÍR átti Sveinbjörn topp leik og vann leikinn fyrir þá, Eiríkur var einnig mjög sterkur allan leikinn og Hreggviður og Ómar áttu fínan leik.
Stigaskor Tindastóls: Ísak 29, Flake 22, Friðrik 21, Svavar 21, Helgi Freyr 15, Helgi Rafn 8 og Óli 1.
ÍR: Sveinbjörn 32, Eiríkur 26, Hreggviður 24, Ómar 19, Steinar 8, Ólafur I 4, Ólafur Þ 3 og Bjarni 2.
Eftir leikinn eru bæði lið með 14 stig ásamt Breiðabliki, en liðin höfðu sætaskipti. Nú er ÍR í 8. sæti, en Tindastóll í því 9. Stólarnir eiga reyndar frestaðan leik inni gegn Njarðvík sem verður leikinn næstkomandi fimmtudag.
Dómarar kvöldsins voru þeir Jón Guðmundsson og Konráð Brynjarsson. Þeir áttu þokkalegt kvöld og héldu sinni línu út leikinn.
Jóhann Sigmarsson






