HomeBónus deildinBónus deild karlaTvífótbrotinn og verður lengi frá

Tvífótbrotinn og verður lengi frá

Tindastóll hefur orðið fyrir miklu áfalli en miðherjinn stóri og stæðilegi Adomas Drungilas verður frá keppni um óákveðinn tíma eftir alvarleg meiðsli í leik gegn Njarðvík í síðustu viku.  

Atvikið átti sér stað í leiknum þegar Litháinn lenti illa á hægri ökklanum með þeim afleiðingum að hælbeinið tvíbrotnaði, en hann var fluttur tafarlaust á sjúkrahús. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, staðfesti í samtali við Vísi að Drungilas hefði farið í myndatöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri til að kanna mögulegt slit á liðböndum, en niðurstaða úr þeirri skoðun lá ekki fyrir síðdegis.  

Ljóst er að Drungilas verður fjarri góðu gamni í langan tíma og missir meðal annars af leik Tindastóls gegn Ármanni í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -