spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaTveir þjálfarar sektaðir

Tveir þjálfarar sektaðir

KKÍ sendi frá sér tilkynningu á dögunum um að Aga- og úrskurðarnefnd sambandsins hefði komist að niðurstöðu í agamálum sem henni hefði borist til úrlausna.

Um er að ræða 2 mál, en líkt og áður um sekt að ræða á þjálfara Njarðvíkur og Keflavíkur í Bónus deild karla.

Agamál 125/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Agamál 126/2025-2026

Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur, sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.

Fréttir
- Auglýsing -