Fyrstu umferð Bónus deildar karla lýkur í kvöld með tveimur hörkuleikjum þar sem stórlið mætast á Suðurnesjum.
Fyrri leikur kvöldsins hefst klukkan 19:00 í IceMar höllinni þar sem Njarðvík tekur á móti Tindastóli. Síðari leikurinn hefst svo hálftíma síðar, klukkan 19:30, þegar Íslandsmeistarar Grindavíkur fá KR í heimsókn í HS Orku-höllina í sannkölluðum stórleik.




