Tveir leikir fóru fram á Norðurlandamótinu í Södertalje í Svíþjóð í dag.
Íslenska U18 ára landslið karla tryggði sér dýrmætan 92-78 sigur gegn Noregi í leik þar sem íslenska liðið sýndi mikinn styrk og náði mest 16 stiga forystu.
Íslenska liðið lék afskaplega vel inn í teignum og skoraði þar heil 58 stig ásamt því að nýta vítaskotin sín frábærlega, eða með 81% nýtingu. Leó Steinsen átti stórleik og fór fyrir íslenska liðinu með 19 stig, Benóní Andrason skilaði 16 stigum og þá átti Sturla Böðvarsson öflugan leik með tvöfalda tvennu; 13 stig og 11 fráköst.
Íslenska U18 ára landslið kvenna hóf leik á Norðurlandamótinu á dramatískan hátt með naumum en sterkum 74-72 sigri gegn Eistlandi eftir mikinn endurkomusigur.
Íslenska liðið lenti mest 12 stigum undir snemma leiks en sneri blaðinu við með frábærum öðrum og þriðja leikhluta þar sem liðið náði allt að 12 stiga forystu, áður en eistneska liðið hleypti spennu í leikinn á lokamínútunum. Arna Rún Eyþórsdóttir dró vagninn í sóknarleik Íslands með 18 stig, Inga Lea Ingadóttir skilaði 13 stigum af bekknum og Þórey Tea Þorleifsdóttir bætti við 11 stigum í þessum mikilvæga sigri.




