HomeFréttirTveir mikilvægir leikir framundan - Miðasala í gangi

Tveir mikilvægir leikir framundan – Miðasala í gangi

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik á tvo mikilvæga leiki fyrir höndum í undankeppni HM 2027 í byrjun næsta mánaðar.

Riðillinn er í miklum hnút en Íslendingar sitja sem stendur í næstneðsta sæti, rétt ofar en Bretar sem lögðu Ísland að velli í nóvember síðastliðnum. Ítalir leiða riðilinn þrátt fyrir að hafa tapað gegn Íslandi í fyrsta leiknum. Strákarnir okkar eiga harma að hefna og dugar einn sigur í þessum tveimur leikjum til að tryggja sæti í næsta fasa keppninnar í haust, en tveir sigrar myndu skjóta liðinu í harða toppbaráttu.

Fyrri rimman fer fram í Laugardalshöll fimmtudaginn 2. júlí þegar Ítalir mæta til leiks og hefur miðasala á þann leik þegar verið opnuð á Stubb.is. Einungis þremur dögum síðar, sunnudaginn 5. júlí klukkan 15:00 að staðartíma, mætir liðið svo Bretlandi ytra í Manchester. Sá leikur verður spilaður í National Basketball Performance Center sem hýsir um 2.000 áhorfendur og eru stuðningsmenn hvattir til að nýta sér einfaldar flugsamgöngur til að styðja við liðið, en hægt er að nálgast miða á útileikinn í gegnum breska miðasölukerfið Fanbase.

Fréttir
- Auglýsing -