Tveir leikir fara fram á Norðurlandamótinu í Södertalje í dag.
Undir 18 ára kvennalið Íslands hefur unnið fyrstu tvo leiki sína á mótinu og geta haldið sigurgöngu sinni áfram gegn Noregi í hádeginu.
Undir 18 ára karlar leika lokaleik sinn á móti þessa árs kl. 11:30 gegn heimamönnum í Svíþjóð. Til þessa hefur liðið unnið þrjá leiki og tapað aðeins einum. Samt sem áður eiga þeir ekki möguleika á gullinu. Háð öðrum úrslitum og gengi í leiknum gegn Svíþjóð er niðurstaða Íslands á mótinu 2. til 4. sætið.
Hérna verður hægt að horfa á leikina í beinu vefstreymi
Leikir dagsins
Norðurlandamót
U18 karlar
gegn Svíþjóð kl. 11:30
U18 konur
gegn Noregi kl. 12:30




